Já þá er ég kominn í sumarfrí, þetta er búið að vera langþráð
frí.
Tökum á Sveitabrúðkaupi lokið og gekk bara prýðilega eins og
lesa má í morgunblaðinu síðasta laugardag, þar sem viðtal er við
hana Valdísi Óskarsdóttir, sem með Mystery Ísland stóðu sig
ótrúlega vel í pruduction á þessari mynd, af leikurum og öllum
aðstandendum myndarinnar þar á meðal erlendra snillinga sem komu að
þessari mynd segjast sjaldan eða aldrei kynnst eins professional
pruduction og leikstjórun eins og gert var við tökur á þessari mynd
og nú er bara biðin hafin á frumsýningu á myndinni sem verður
væntanlega um haustið 2008.
Af öðru þá er ég kominn í sumarfrí eins og sagði hér áðan og mun
ég halda leið mína til Krítar á laugardaginn þar til 14. júní sem
er gott
(tek með mér Snorra-Eddu og tölvuna þar sem ég
verð víst að læra þarna í hitanum til að ná dönskunni í fjarnámi á
meðan ég er ytra) býst ég svo við að mæta aftur í vinnu 18.
júní, þetta mun vera lengsta frí sem ég hef tekið í vinnu og minna
má það nú ekki vera til að hlaða batteríin.
Búinn að skrá mig í sumarskólann og byrja í dönsku 29.maí og mun
prófið vera í henni næstu daga eftir að ég lendi á klakanum, svo
viku seinna þá byrja ég í ísl og ens og mun sá kúrs taka í kringum
mánuð, þegar því er lokið er ekkert annað en að skrá sig í
kvöldskólann í FB og halda áfram leið minni að stúdentinum, þar er
það ísl og 2*dan og svo ef til vill í dagskóla í FB svo vorönn þá
taka við ens, ísl og svo aftur 2*dan. Jú ég er að fara taka 5
áfanga í dan og 2 áfanga í ens og 3 áfanga í ísl, þetta verður
eflaust strembið en við látum það ekki á okkur fá og vinnum þetta á
þrjósku, ákveðni og vilja er það ekki................bla bla bla
bla
Við sjáumst bara kannski þegar ég kem aftur en ég mun líklega
skrifa einhverja vitleysuna á meðan ég er í sólbaði að reyna læra
eitthvað 
hvernig segir maður bless á grísku uhhhhh bara bing bara bæ er
það ekki..................